mánudagur, 4. mars 2013

Vel heppnuðu móti lokið

Nú er vel heppnuðu móti lokið og held ég að allir sem tóku þátt, jafnt fullorðnir sem börn hafi haft gaman að. Ég vil koma sérstöku þakklæti til liðsstjóranna sem stóðu sig frábærlega og héldu vel utan um sín lið.  Þau Stefán Borgþórs (pabbi Aðalheiðar), Stefán Reynis (pabbi Margrétar) og Þórhalla (mamma Helga) stóðu vaktina alla helgina sem liðstjórar.  Vil einnig þakka foreldrum sem voru ómetanlega hjálp fyrir okkur liðstjórana og þjálfara.  Síðast en ekki síst börnin okkar sem voru til fyrirmyndar innan sem utan vallar og okkar félagi til mikilla sóma.

 

1 ummæli:

  1. Sammála, liðstjórar hjá drengjunum, Hafdís og Þórhalla eiga stórt hrós skilið. Viktor Atli er alsæll með mótið.

    SvaraEyða