föstudagur, 19. febrúar 2016

Æfing laugardaginn 20. feb kl. 12-13 í Hraunvallaskóla

ATH það er breyttur æfingatími á morgun laugardaginn 20. febrúar.  Æfingin verður í Hraunvallaskóla kl. 12-13.

fimmtudagur, 11. febrúar 2016

Nettómótið 5.-6. mars

Nettómótið fer fram dagana 5.-6. mars.  Við höfum sótt þetta mót árlega og það notið mikilla vinsælda.  Þetta mót er frábrugðið öðrum mótum vetrarins, en mikið er gert úr dagskrá utan leikja mótsins og gist er í skóla.

Kostnaður við mótið er 8.500 kr. á hvern þátttakanda, innifalið í mótsgjaldinu er eftirfarandi:


  • 5 leikir á lið
  • Bíóferð í SamBíóin, myndin verður Úbbs! Nói er farinn sem er ný ævintýra teiknimynd
  • Frítt verður í Vatnaveröld - Sundmiðstöð
  • Hádegisverður og kvöldverður í FS á laugardag
  • Kvöldvaka með landsþekktum skemmtikröftum, troðslukeppni og glaðning í körfuboltaskóinn.
  • Kvöldhressing á gististöðum, laugardagskvöld
  • Gisting í grunnskólum Reykjanesbæjar
  • Morgunverður í FS á sunnudag
  • Hádegisverður í FS á sunnudag – Pizzuveisla frá LANGBEST
  • Verðlaunapeningur
  • Vegleg gjöf í mótslok 
  • Reykjaneshöllin verður opin alla helgina en þar er boðið uppá a.m.k. þrjá hoppukastala, þ.a.einn lengsta hoppukastala landsins.
  • Innileikjagarðurinn Ásbrú verður opinn um helgina sem er skemmtilegt innileikjasvæði fyrir krakka 
  • á aldrinum 2-8 ára.
  • Ungmennagarðurinn við 88 húsið og Fjörheima verður opinn en þar má m.a. finna uppblásinn ærslabelg, aparólu, minigolfbrautir, hjólabrettapalla, netboltasvæði, hjólastólarólu o.fl.


Þeir sem ætla að vera með á þessu skemmtilega móti, skrái sig í athugasemdir hér fyrir neðan.  Ég þarf að fá staðfestingu um skráningu í síðasta lagi þann 25. febrúar.

Ég mun svo þurfa 1 liðstjóra fyrir hvert lið á mótinu, sjá hlutverk hans hér fyrir neðan.  Reynslan hefur verið að foreldrar hafa skipt þessu hlutverki á milli sín.  Einnig þarf einhverja foreldra með til að gista.

Hlutverk liðstjóra
Er að sjá um liðið á milli leikja og sjá til þess að hópurinn mæti samkvæmt fyrirfram ákveðinni dagskrá. Meðal dagskrárliða eru matartímar, bíóferð, sundferð (þarf líklega fleiri foreldra með hér), kvöldvaka og síðast en ekki síst vera tímanlega mætt á leikstað fyrir hvern leik.  Foreldrar sem ætla að taka krakkana sína til sín á milli leikja, skulu láta liðstjóra vita.

Gisting
Boðið er upp á gistingu í skóla og þurfa því leikmenn að hafa með sér dýnu svefnpoka/sæng og kodda.  Það þurfa ekki allir að gista, sumir foreldrar hafa kosið að fara heim að laugardagskvöldi og mæta með drenginn á sunnudagsmorgni, það er í góðu lagi.

Annar búnaður
Hafa þarf með sér a.m.k., s.s. tannbursta/tannkrem, aukafatnað, sundfatnað/handklæði, keppnisskó, keppnisbúning og stuttbuxur (eða rauðan bol og stuttbuxur).  Einnig gott að hafa nesti með sér, til að fá á milli mála, s.s. ávexti, brauð, kex, drykk (ekki gos) eða eitthvað slíkt.  Það er möguleiki að versla sér eitthvað í bíó, við skulum þó setja viðmið að enginn sé með meira en 1.000 kr í vasapening.

Hvað fer ekki með
Mæli ekki með að hafa með sér tölvuspil, síma eða önnur dýr raftæki.  Einnig munum við ekki taka með okkur gos og sælgæti.

Almennar upplýsingar um Nettómótið
Haldinn er úti sérstök heimasíða fyrir mótið þar sem allar helstu upplýsingar er að finna, http://www.nettomot.blog.is/blog/nettomot/.

föstudagur, 5. febrúar 2016

Liðsmyndir frá Póstmótinu 2016 - draumalidid.is




Flottir drengir sem tóku þátt í póstmótinu og voru sér og Haukum til sóma.  Hér að neðan eru liðsmyndirnar og einnig er hlekkur í myndasafninu á myndirnar sem teknar voru á mótinu.