þriðjudagur, 25. september 2012

Tilkynning frá íþróttatstjóra


Kæru forráðamenn
Nú er búið að opna fyrir kerfið sem sér um að taka á móti skráningu og greiðslu æfingagjalda. Það er búið að samkeyra kerfið (Nóri) við Hafnarfjarðarbæ og nú er hægt að fá niðurgreiðsluna strax með því að fara í gegnum mínar síður hjá Hafnarfjarðarbæ eða að fara í gegnum haukar.is sem leiðir ykkur á mínar síður.
Þetta er breyting frá því sem áður var því nú greiða forráðamenn mismuninn milli heildaræfingagjalds og niðurgreiðslu. Hafnarfjarðarbær greiðir síðan mánaðarlega beint til íþróttafélaganna niðurgreiðsluhlutann.
Þannig að það sem áður var eins og það að fara inn á íbúagátt og merkja við niðurgreiðslu þrisvar yfir árið er ekki lengur til, einng þá fá forráðamenn strax niðurgreiðsluna og þurfa því ekki að fá endurgreitt frá félaginu.

Það helsta við þetta nýja kerfi er að forráðamenn verða að ganga frá æfingagjaldinu í síðasta lagi 10. október til að fá fulla niðurgreiðslu. Ef það tefst fram til 11. október þá fellur niður endurgreiðsla fyrir sept., ef skráð er 1.nóv. þá fellur niður greiðsla fyrir okt. o.s.frv. Við hvetjum því forráðamenn til að ganga frá greiðslu sem fyrst.

Hægt er að greiða með kreditkorti og skipta greiðslum í að hámarki 12 greiðslur – enginn aukakostnaður.
Einnig er hægt að greiða með greiðsluseðli og skipta greiðslum í að hámarki 12 greiðslur – hér er rukkað svokallað þjónustugjald sem er ca. 450 krónur á hverja greiðslu.

Hægt er að fá leiðbeiningar um hvernig skráning fer fram á slóðinni http://haukar.is/ibuagatt.
Við vekjum athygli á því að það verður að ganga frá greiðslu til að fá niðurgreiðsluna.

föstudagur, 7. september 2012

Æfingagjöld (tilkynning frá íþróttastjóra


Kæru forráðamenn/foreldrar

Mig langar að byrja á því að þakka þeim sem komu á Haukadaginn okkar fyrir komuna. Frábært að sjá hversu margir sáu sér fært að mæta – svona gerum við gott félag betra.

Nú er komið að greiðslum æfingagjalda fyrir tímabilið 2012-2013.
Hafnarfjarðarbær ákvað að taka sama kerfi, Nóra, og við höfum verið að nota í eitt og hálft ár. Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur öll því þarna sameinast greiðslur æfingagjalda og niðurgreiðslur. Það verður því þannig að forráðamenn greiða mismuninn á æfingagjöldum og niðurgreiðslum, sem dæmi:
Iðkandi í 7. flokki í knattspyrnu, æfingagjald 45.000
Niðurgreiðslan er 20.400 (12 x 1.700)
Forráðamenn borga því 45.000-20.400 sem gera 24.600.
Bærinn mun því greiða okkur beint mismuninn – allt mun einfaldara og betra.

Hafnarfjarðarbær er ekki tilbúin með kerfið og því vil ég biðja forráðamenn að bíða rólega þar til ég sendi út tilkynningu um að það sé í lagi að byrja að ganga frá æfingagjöldum.
Þá sendi ég ykkur einnig skýringu á því hvernig þetta er gert en til að gera langa sögu stutta í fyrstu adrennu þá er þetta allt gert í gegnum haukar.is.
Nú þurfið þið ekki að fara á íbúagátt þrisvar yfir árið eins og verið hefur.
Nánari útskýringar koma í póstinum þegar ég tilkynni ykkur að kerfið sé tilbúið.