mánudagur, 29. ágúst 2016

Æfingar hjá mb10-11 ára 2016-2017

Æfingar hjá drengjum 2005 og 2006 í mb 10-11 ára veturinn 2016-2017 verður sem hér segir:

Mán 18-19 Hraunvallaskóli
Mið 16-17 Ásvellir B
Fim 17-18 Hraunvallaskóli
Sun 10-11 Ásvellir B

Kem til með að setja upp facebook grúppu fyrir hópinn til að koma skilaboðum áleiðis.

þriðjudagur, 17. maí 2016

Uppskeruhátíð miðvikudaginn 18. maí

Uppskeruhátíð yngri flokka körfuknattleiksdeildar verður haldin kl. 17 miðvikudaginn 18. maí.  Allir iðkendur minniboltans fá afhentan verðlaunapening fyrir þátttöku á tímabilinu.

miðvikudagur, 4. maí 2016

Enginn æfing fimmtudag, uppstigningardagur

Á morgun fimmtudag er engin æfing, Ásvellir eru lokaðir.  Uppstigningardagur.  Næsta æfing verður á laugardaginn kl. 9 á Ásvöllum.

Síðsta æfing tímabilsins verður þriðjudaginn 17. maí.  Uppskeruhátíð körfuknattleiksdeildarinnar verður haldin svo 18. maí, nánar um hana síðar.

mánudagur, 2. maí 2016

Skemmtiæfing á morgun

Á morgun þriðjudag verður æfing með öðru sniði.  Við höfum fengið leyfi til að nota áhöldin í íþróttahúsinu og verður sett upp "Tarzan" braut í hálfum sal.  Í hinum helmingnum munum við skipta í lið og spila körfubolta.

föstudagur, 29. apríl 2016

Stjörnustríð 2016

Flottu móti hjá Stjörnunni lokið og að venju stóðu okkar drengir sig frábærlega.  Það eru komnar inn myndir hér til vinstri og svo koma liðsmyndir hér að neðan einnig.






fimmtudagur, 28. apríl 2016

Haukar - KR, fjórði leikur

Í kvöld 28. apríl kl. 19:15 fer fram fjórði leikur Hauka og KR um íslandsmeistaratitilinn.  Fjölmennum á leikinn.

mánudagur, 25. apríl 2016

Oddaleikur um íslandsmeistaratitilinn

Á morgun þriðjudaginn 26. apríl fer fram oddaleikur milli Hauka og Snæfells um íslandsmeistaratitil í úrvalsdeild kvenna.  Hvetjum alla til að mæta í rauðu og hvetja okkar lið til sigurs.  Fram til þessa hafa þessir leikir verið mikil skemmtum og góð stemmning á pöllunum.  Ætla má að oddaleikurinn verði ekki síðri.

Vonast til að sjá sem flesta á leiknum.