mánudagur, 23. september 2013
Æfingin 24. september
Ég verð því miður fjarverandi á æfingu á morgun. Magni (sonur minn) mun stýra fyrri hlutanum af æfingunni hjá stelpunum 16-17. Dagbjört mun sjá um seinni hlutann og síðan æfinguna hjá strákunum.
fimmtudagur, 19. september 2013
Möguleiki á fleiri æfingum
Strákar sem treysta sér til að æfa með 8-9 ára strákum, stendur til boða að sækja æfingar á laugardögum kl. 14-15 í Hraunvallaskóla. Vil þó taka fram að þarna eru strákar að æfa sem eru 1-2 ári eldri, en þó ekki fjölmennur hópur. Strákar í byrjendaflokki sem hafa þokkalegan grunn hafa fullt erindi til að sækja þessar æfingar líka.
2 stelpur úr byrjendaflokki hafa sótt æfingar hjá 8-9 ára stelpum. Aðrar stelpur eru flestar að byrja og því ekki tímabært að byrja strax með eldri stelpum. En ég mun þó skoða það þegar líður meira á veturinn hvort það bætist ekki í hópinn þar.

fimmtudagur, 5. september 2013
Haukadagur sunnudaginn 8.september
Haukadagur verður á Asvöllum næsta sunnudag, þann 8. september frá kl. 13:00-16:00. Æfingatöflur deildanna verða kynntar og hægt verður að ganga frá ársgjöldunum. Í iþróttasalnum verða deildirnar með hinar ýmsu skemmtanir og þrautir á milli kl. 13:00-15:00. Nánar um dagskrána kemur á heimasíðu Hauka á föstudaginn, haukar.is
miðvikudagur, 4. september 2013
Fyrsta æfingin
Fyrstu æfingu tímabilsins lokið. Það varð lítið úr stelpuæfingunni, þar sem einungis 1 stelpa mætti. Vona að það verði fleiri á næstu æfingu, en í fyrra var þetta flottur hópur sem skemmti sér vel á æfingum. Endilega að kíkja á æfingu og prófa, taka líka vini með.
Strákarnir voru öllu fleiri og þar af 6 strákar að mæta á sína fyrstu æfingu, hópurinn var því alls 14 strákar. Spennandi vetur framundan og vona að allir haldi áfram að mæta, og að hópurinn stækki jafnvel enn meira.
Vildi benda á að með æfingagjöldin, að fyrir þennan hóp í byrjendaflokki, þá er það þannig að ef greitt er gjald fyrir eina boltagrein, þá gildir það fyrir aðrar líka. Þannig að ef t.d. er búið að greiða fyrir fótbolta, þá gildir það líka fyrir körfu og handbolta. Eina sem bæta þarf við er skráning í gegnum þá síðu sem greitt er í gegnum, ekki þarf að borga aftur. Það verður betur farið yfir þetta á foreldrafundi, sem ég á eftir að boða, en verður væntanlega seinni hluta septembermánaðar.

laugardagur, 31. ágúst 2013
Æfingin 3. september
Ég verð því miður fjarverandi á fyrstu æfingunni þann 3. september. En hann Emil Barja mun stýra æfingunni í minni fjarveru, ásamt Dagbjörtu. Vona að sem flestir mæti.
fimmtudagur, 22. ágúst 2013
Æfingar tímabilið 2013-2014 að byrja
Æfingar fyrir árið 2013-2014 eru að fara af stað og munu hefjast 2.september, æfingar verða á eftirfarandi tímum:
Strákar fæddir 2006 og yngri
Þriðjudagar kl. 17-18
Fimmtudagar kl. 17:10-18
Stelpur fæddar 2006 og yngri
Þriðjudagar kl. 16-17
Fimmtudagar kl. 17:10-18
Þjálfarar verða þau Marel Örn Guðlaugsson og Dagbjört Samúelsdóttir

miðvikudagur, 5. júní 2013
Sumaræfingar
Æfingar í sumar fyrir yngri flokka körfuknattleiksdeildar
Krakkar fæddir 2001 og yngri – Alla virka morgna frá kl. 9-12 á Ásvöllum. Þessar æfingar eru tengdar íþróttaskóla Hauka í sumar. Þeir sem skrá sig í körfubolta verða einungis á körfuboltaæfingum og farið verður yfir grunnatriði í körfubolta. Boltaæfingar, skotæfingar og spilæfingar frá kl. 9.00 – 10.15 og síðan spil frá kl. 10.45 – 11.50. Muna að koma með nesti með sér á þessar æfingar. Yfirþjálfari verður Ívar Ásgrímsson. Skráningar eru hafnar.
Krakkar fæddir 2000 – 1996 – Mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 16.00 – 18.00 á Ásvöllum. Þessar æfingar verða með hefðbundnu sniði eins og verið hefur síðustu tvö sumur. Æfingar byrja fimmtudaginn 13. Júní og þá verður líka skráning. Verð verður auglýst nánar síðar. Yfirþjálfari verður Ívar Ásgrímsson.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)